Fögruvallafjölskyldan

Allt um lífið hjá okkur

Blogg

23.8.2009

Helgin á Íslandi og í Köben

Nú er öll fjölskyldan samankomin heima eftir flandur um allar grundir!

Húsfrúin fór til Köben í heimsókn til Díu, systur sinnar ásamt því að fara í vinnuferð í leiðinni.
Það var aldeilis frábært í heimsókn hjá Díu, farið var í siglingu á seglbát, að versla á Strikinu, í matarboð til Sigga bróðir og þar hitti ég líka Sigrúnu, Ulrik og Söru. Svo var farið yfir til Svíþjóðar og verslað í HM, á ströndina að busla í sjónum og loks farið í danskt partý og djammað fram á nótt!

Jón, Rakel og Selma fóru í sveitina og var margt að gerast þar emoticon
Stelpurnar tóku þátt í Vallarmótinu sem Lýsisfjölskyldan stendur að. Það var sérstaklega glæsilegt mót og ekki skemmdi fyrir að Rakel vann 1.sætið í Barnaflokki og Selma var í 6.sæti í sama flokki.

Svo var haldið á "Vinnuhjúamótið í Skarði" og var það rólegt en þó var gaman. Virtist vera mesta fjörið eftir miðnætti þegar þau voru farin....

en hvað um það þá var mjög gaman hjá þeim og voru þau komin í bæinn í lok dagsins.

Þetta var feiknafjör hjá okkur öllum, Danni skemmti sér á Menningarnótt í bænum!

Skólinn er að byrja hjá okkur mæðgum þannig að það verður nóg að gera framundan :)

Skrifað 23.8.2009 kl. 18:41 af Húsfrúin

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

17.8.2009

Töðugjöldin

Við skelltum okkur á Töðugjöldin um helgina á Hellu. Það var fjör en þó svolítið skrítið að þurfa að borga sig inn á svæði þar sem ekkert var innifalið nema að fá að sitja í brekkunni og ganga um svæðið emoticon

En hvað um það, Rakel og Selma María ákváðu að keppa á Stórmótinu sem var þar um helgina. Það hófst á fimmtudeginum þannig að við mæðgur ákváðum að haska okkur austur snemma morguns með merarnar í eftirdragi emoticon
Keppnin gekk mjög vel, þetta var Gæðingakeppni og Rakel komst í úrslit á Spyrnu sinni í barnaflokki með 8,27.  Selma María var að keppa í sitt fyrsta skipti í alvöru keppni aðeins 7 ára gömul og fór prógrammið svotil hnökralaust og stóð sig eins og hetja!  Hún fékk í einkunn 7,95 og var móðir hennar mjög stolt af henni!

Ákváðum að vera í Kotinu okkar um nóttina og fengum Jón Garðar austur um kvöldið. Á föstudagskvöldinu var Rakel að keppa í Smalanum og var það alveg meiriháttar fjör! Svo fór að hún náði að vinna barnaflokkinn og atti kappi bæði við Nínu Maríu vinkonu sína og frænku sína Rakel Natalie.

Á laugardeginum vorum við róleg í sveitinni, vinna, járna, gróðursetja og ríða út. Drifum okkur á kvöldvökuna á laugardagskvöldinu og skemmtum okkur til miðnættis þegar við drifum okkur heim.

Sunnudagurinn, þá átti Rakel að keppa í úrslitum og gekk það svona frábærlega emoticon
Hún reið sig upp úr 9.sæti upp í 5.sæti!!! Það var svolítið sætur sigur fyrir hana.

Um kvöldið drifum við okkur heim því vinnan tekur við í nýrri vinnuviku. Sú gamla er á leið til Köben og verður þar í nokkra daga.

Meira síðar, næsta helgi er Vinnuhjúamót Skarðs haldið á Brúarlundi, allir velkomnir.

Skrifað 17.8.2009 kl. 21:59 af Húsfrúin

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

4.8.2009

Verslunarmannahelgin

Frábær verslunarmannahelgi er nú liðin emoticon  Mikið fjör var í sveitinni og var margt gert.

Helgin byrjaði hjá okkur á því á fimmtudagskvöldi var komið sér fyrir og farið í stuttan reiðtúr.

Á föstudeginum var smíðaður 24 fm sólpallur fyrir framan Kotið og var það þvílíkur munur! Næstum jafnstór og danspallur. Fengum gesti til okkar sem voru í tjaldvagni, þau feðgin Jónsa og Andreu ásamt Nínu Maríu frænku þeirra.  
Það  var farið í flottan reiðtúr um kvöldið, Helga og Júlli komu ríðandi til okkar og fórum við öll saman. Að venju var buslað í Minni-Valla læknum, alltaf finnst okkur og hestunum það jafngaman :) 


Á laugardeginum var farið fyrir hádegi að hreinsa grjót úr reiðleiðum við Landveginn, hópur fólks tók þátt í því, allt nágrannar á Litla-Klofa og Stóru-Völlum. Ákveðið var að vígja "nýja" reiðveginn með því að fara í sameiginlegan reiðtúr inní Réttarnes síðar um daginn. Þá gerði úrhellisrigningu og þurftum við að fresta för um 1 klst.  Alls fóru um 30 manns ca í reiðtúrinn og var mjög gaman. Fórum nýja leið heim frá Landveginum, fórum meðfram Tjarnarlæk inn að Fögruvöllum og tókum hóp fólks með okkur.
Svo var grillað um kvöldið og farið á brennu á Litla-Klofa. Þær mæðgur, Nína og Gerður komu til okkar og borðuðu með okkur.  Eftir brennuna var haldið í partý hjá Hreggvið og Helgu og trallað fram eftir nóttu.

Á sunnudeginum var heitt og gott veður, það var slakað á en ákveðið að laga til og gera huggulegt fyrir "Brúarslaginn" sem átti að vera síðar hjá okkur á Fögruvöllum. Við tiltektina var mikill ærslagangur í hópnum og var farið að busla og henda hvort öðru út í og taka forskot á Brúarslaginn ógurlega.
Í sjálfan  Brúarslaginn komu þó nokkrir og skemmtu sér konunglega :)  Ærslagangurinn var orðinn svo mikill að farið var að henda fólki út í frá bakkanum en ekki brúnni sjálfri ....
Helga og Júlli komu ríðandi til að taka þátt í Brúarslag, en sáu fram á að blotna og horfðu þá bara á. Við riðum með þeim í góðan hring um sveitina og var svo heitt í veðri að við fórum okkur hægt á hrossunum.
Um kvöldið var grillað og komu mæðgurnar, Gerður og Nína, aftur til okkar og fóru með okkur á brennuna inn í Frekju-Skarð um kvöldið.  Það var mikið fjör og gaman þennan dag.

Á mánudeginum var rólegur dagur hjá öllum, þó svo að eitthvað hafi verið sett niður af plöntum á landið. Fórum í heimsókn inn í sumarbústað til Nínu og Gerðar ömmu, en þegar við vorum nýlega komin þangað þá komu Rósa og Ómar í heimsókn til okkar á Fögruvelli þannig að það var stoppað stutt í sumarbústaðnum að Görðum.  Einnig komu í heimsókn Hrefna María og John en þau höfðu öll verið í heimsókn á Flúðum um helgina.
Tókum allt saman og gengum frá um kvöldið og fórum í bæinn um kl. 23.00. 
Öll erum við ánægð eftir góða helgi.
 





Skrifað 4.8.2009 kl. 11:57 af Húsfrúin

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

20.7.2009

Sveitasælan

Nú höfum við verið í heila viku og gott betur í sveitinni ... þvílík sæla!

Allt á fullu við að koma sér vel fyrir í Kotinu okkar góða.  Mikil vinna hefur verið við frágang á lögnum, rotþrónni, tyrfa allt vel og vandlega. Vatnið, klósettið, sturtan, uppþvottavélin og allt er farið að virka svo vel að við þurfum bara að fá okkur þvottavél þá þurfum við ekkert að koma til Reykjavíkur ... nema til að vinna.

Margir góðir gestir hafa komið til okkar í sveitina og er það nú aldeilis frábært!

Nú er komin BRÚ yfir Fögruvallafljótið (Tjarnarlækurinn) og fengum við stóra gröfu til verksins.
Planið er að efna til "Brúarslags" um Verslunarmannahelgina, sá vinnur sem getur hent flestum út í lækinn :)

Mikið hefur verið riðið út í sveitinni og einnig fóru nokkur í sundreið! Veðrið hefur verið alveg frábært og mjög gaman að njóta sveitadvalarinnar á hestbaki. Best þykir okkur þó að fara á hestbak á kvöldin því kvöldin eru svo falleg í sveitinni :)

Allir eru velkomnir í heimsókn, hægt er að tjalda og eitt herbergi er aukalega fyrir gesti, fyrstur kemur fyrstur fær..... nema að panta fyrirfram :)

Heyrumst hress og kát - hlakka til að hitta ykkur sem flest í sveitinni :)
 




Skrifað 20.7.2009 kl. 11:39 af Húsfrúin

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

6.7.2009

Kotið komið í sveitina

Sumarið okkar byrjaði 2.júlí ....Mikil gleði og mikið fjör!  Kotið var flutt á Fögruvelli á fimmtudag og gekk það vonum framar.
Við vorum svo heppin að okkur bárust hjálparhendur óvænt og kom það sér mjög vel. Feðgarnir á Tanganum, Dóri rakari og synir, komu eins og kallaðir og aðstoðuðu. Svo komu Nína og Sæmi eins og sending að himnum ofan og hjálpuðu til fram eftir kvöldi.

Mikill gestagangur var alla helgina, alltaf gaman að fá gesti og hitta skemmtilegt fólk!

Nágrannar okkar komu ríðandi og bílandi á föstudagskvöldinu og skoðuðu nýja Kotið okkar.

Fjölskyldan og vinir komu og skoðuðu og leist vel á :) 

Við verðum í sveitinni allar helgar í sumar fram á haust og eruð þið velkomin í heimsókn :)


 

Skrifað 6.7.2009 kl. 9:24 af Húsfrúin

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

27.6.2009

Íslandsmót barna & unglinga í hestaíþróttum 2009

Nú stendur Íslandsmótið sem hæst og Rakel keppir þar í barnaflokki að sjálfssögðu!

Hún byrjaði í gær á Freyju frá Brekkum (ræktunarmerinni hans Jóns) og gekk sýningin mjög vel NEMA að þegar hún var að klára sýningu þá stökk merin út AF vellinum! Alveg hreint ótrúlegt að merin skyldi taka upp á slíku öllum að óvörum! úff og þar með var hún úr leik í fjórgangi!

En í dag þá var keppt í tölti og fór hún á Spyrnu merinni sinni. Það gekk alveg ljómandi vel og komst hún í B-úrslit. Það er mikil gleði að komast í úrslit með 5,77 í einkunn því í dag þá hafa bæði hestar og knapar bætt sig svo í hæfileikum að þetta fer að verða mjög hörð keppni!

Á laugardag þá keppir hún bæði í 5.gangi á Spyrnu og einnig fer hún í B-úrslit í tölti. Það verður spennadi að fylgjast með því!
 
Við verðum sennilega í bænum fram á laugardags eftirmiðdag og skellum okkur jafnvel í sveitina til að ná Klofarokkinu!! og einnig til að vinna að undirbúningi fyrir Kreppukotið .... það verður flutt von bráðar í sveitina! Danni verður heima að passa húsið :)

okkur hlakkar öllum svo svakalega mikið til ... að við getum varla beðið :)

Skrifað 27.6.2009 kl. 1:44 af Húsfrúin

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

22.6.2009

Eitt og annað

Jæja nú er húsfrúin komin í sumarfrí frá skólanum! loksins kom að því. Hún vinnur að rannsókn í sumar, sem nýtist henni beint við BSc ritgerðina í haust. emoticon Alveg frábært.

Rakel er búin að vera í sveit í júní á Álfhólum hjá frænkum sínum og hefur unnið þar við tamningar og þjálfun hesta. Það hefur gengið vel og mun hún stefna á að taka þátt á Íslandsmóti barna um næstu helgi. Við fjölskyldan fórum í V-Landeyjarnar þann 17.júní til að taka þátt í hátíðarhöldum þar, því Rakel var í sveitinni á þeim tíma. Systurnar tóku þátt í sama flokki og vann Rakel 1.sæti á Spyrnu en Selma komst ekki áfram þar sem hún var ekki að keppa við jafningja sína.
Jón Garðar keppti einnig og komst í 3.sæti á Freyju!  Svo var keppt í hlaupi og var Rakel í 2.sæti í sínum flokki.
Þannig að fólkið úr Reykjavík kom sá og sigraði í V-Landeyjum á 17.júní! og örugglega ekki vinsælt að fá liðið í Reykjavík til að hirða öll verðlaunin emoticon

Selma María var á 2 vikna reiðnámskeiði hjá Faxabóli og var alveg frábær framför hjá henni! Hún fékk að ríða mörgum og misjöfnum hrossum og lærði heilmikið af því. Einnig fékk hún að fara í hindrunarstökk og að ríða berbakt. Þau ætluðu að fara að sundríða en þurftu að hætta við vegna veðurs.

Annars miðar vinnu við Kreppukotið ágætlega, verið að standsetja baðherbergið og allt í góðum gír! Stefnum á að flytja það fyrstu helgina í júlí! Vonandi gengur það.

Takk í bili - Heyrumst síðar :)

Skrifað 22.6.2009 kl. 22:29 af Húsfrúin

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

14.6.2009

Kreppukotið góða

Nú miðar vinnu og smíðum við Kreppukotinu mjög vel og er búið að mála, parketleggja og verið að undirbúa úti málningavinnu :)  Allt verður þetta mjög fínt hjá okkur.

Í húsinu verða 3 herbergi þannig að þegar fólk kemur í heimsókn þá er hægt að gista, þar sem hægt er að fá 1 herbergi lánað.

Svo er stefnan að flytja það eftir 2 vikur þegar mest öll vinnan er búin inni og að einnig að mála það að utan. Svo stefnum við á að setja hallandi þak á það í  haust ásamt því að klæða það að utan. En það bíður fram á haustið :)

Okkur hlakkar alveg svakalega til að fá hús i sveitina og verður mikil gleði þegar fyrsta nóttin verður að veruleika í húsinu :)

ég setti inn nýjar myndir ... endilega skoðið :)

Skrifað 14.6.2009 kl. 22:49 af Húsfrúin

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

1.6.2009

Hvítasunnuhelgin liðin

Jæja svona í lok helgarinnar þá er ágætt að líta yfir árangurinn :)

Á Reykjavíkurmeistaramótinu Rakel hafnaði í 6.sæti í A-úrslitum í fjórgangi barna og féll niður um 2 sæti sem var svolítið súrt. Einnig náði hún í úrslit í tölti og fékk 10.sætið. Í báðum keppnum var hún á Freyju merinni hans Jóns. Það er aldrei að vita hvernig gengur í úrslitum og því ekki hægt að ganga að neinu vísu í þeim efnum.  

Gömlu hjúin voru meira og minna alla helgina að vinna í Kreppukotinu og gekk það vel. Nú er kofinn tilbúinn til málunar, búið að klæða og þrífa allt.

Rakel er að fara í sveit og fær að vera á Álfhólum í júní. Það er frábær reynsla að komast í hestabúgarð og fá að vera hjá frænkum sínum.

Selma María hefur endalausa þolinmæði í hestamennskunni og getur eytt öllum deginum frá morgni til kvölds við það að dúlla við hrossin okkar allra. Hún fer með þá út að labba, leyfir þeim að bíta, fer með þá í hesthúsið og snyrtir þá allan hringinn. Fléttar, setur hlífar, hófolíu, áburð í fax og tagl, og allt hvað eina til að gera þá fína. Svo skellir hún sér á bak með Ólöfu Helgu, vinkonu sinni og þær fara í reiðtúr ýmist með okkur eða fjölskyldu hennar. Þannig að hún er alveg óstöðvandi í hesthúsinu frá morgni til kvölds.

Daníel hefur verið að hjálpa okkur í að gera Kreppukofann tilbúinn til flutnings og svo er hann að vinna hjá Símanum á kvöldin.

Jæja svo er húsfrúin að taka eitt fag í júní og klárar það um 22.júní. Vonandi gengur það vel, það er ekki mikil þolinmæði í að vera í skólanum yfir sumarið.... get ekki beðið að það klárist!



Skrifað 1.6.2009 kl. 20:34 af Húsfrúin

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

27.5.2009

Reykjavíkurmeistaramótið 2009

Nú er það hafið, Reykjavíkurmeistaramótið 2009.  Met fjöldi í skráningum og tekur mótið 6 daga! Meiriháttar veisla fyrir alla hestaunnendur að horfa á!

Rakel var að keppa í dag í fjórgangi á Freyju frá Brekkum II (merinni hans pabba síns) og gekk mjög vel. Eftir forkeppni er hún í 4.sæti og er því í A-úrslitum. Alveg frábær árangur það!

Hún keppti í fyrsta skipti í fimmgangi á föstudeginum og gekk allt prógrammið mjög vel nema þó ekki skeiðið, því merin skeiðaði ekki! Þannig komst hún ekki áfram í þeirri grein.

í gær keppti hún í tölti á Freyju og gekk vel, nema að okkur fannst hún fá frekar lága einkunn miðað við hve vel henni gekk (eitthvað sem við sáum ekki en dómarar hafi séð).
Þó komst hún í úrslit með naumindum því hún var í 10.sæti.

Úrslit í tölti verða riðin í dag (sunnudag) en á morgun verða riðin A úrslit í fjórgangi. Mjög spennandi allt og vonandi gengur stelpunni vel :)

Þannig að það er mikið framundan þessa helgi hjá okkur og ætlum við í leiðinni að skella okkur í leikhúsið til að sjá "Söngvaseið".

Skrifað 27.5.2009 kl. 22:01 af Húsfrúin

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

22.5.2009

Kreppukotið í byggingu

Skoða nánar

11.5.2009

Gæðingakeppni Fáks

Skoða nánar

9.5.2009

Kreppukotið

Skoða nánar

20.4.2009

Frábær árangur á Líflandsmóti 2009

Skoða nánar

15.4.2009

Keppni og aftur keppni

Skoða nánar

31.3.2009

Fellihýsið selt - nú verður að gera eitthvað!!

Skoða nánar

28.3.2009

Góður árangur!

Skoða nánar

21.3.2009

Er ekki kominn tími til að Blogga??

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Vafraðu um

Lífið hjá Fögruvallafjölskyldunni

Nafn:

Jón, Ólöf, Daníel, Rakel, Selma og Bella

Farsími:

Auðvitað ....

MSN netfang:

olof05@ru.is, bætið því inn hjá ykkur

Afmælisdagur:

20.des,12.sept,3.júní,19.feb,8.feb og 24.des

Heimilisfang:

Í jaðrinum á höfuðborginni

Staðsetning:

Á Fróni

Heimasími:

Líka heimasími

Um:

Um hvað snýst lífið hjá okkur öllum ... :)

Tenglar

Flettingar í dag: 14
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 9
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 16637
Samtals gestir: 5681
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 11:28:41
clockhere